Helgin
Föstudagurinn
Ætlaði að slappa af á föstudaginn en mamma og pabbi plötuðu mig til að keyra þau í bæinn. Þau langaði svo að fara á ball með Brimkló á Nasa. Þau hafa nefnilega ekki farið í bæinn til að dansa síðan Ómar hafði hár. Ég gat náttúrulega ekki neitað þeim þar sem þau hafa svo oft sótt mig og keyrt mig hingað og þangað. Aðallega þangað. Ég brunaði með þau í bæinn og skildi þau eftir hjá Nasa. Ætlaði svo að fara að hitta Skrattheu, Ásdísi, Gumma og Lísu heima hjá Möttu. Þegar ég var á leiðinni til þeirra langaði mig allt í einu í bíó. Ég bauð engum með heldur brunaði bara upp í Smáralind og keypti mér miða á Hollywood Homicide. Hringdi svo í krakkana og sagðist vera í bíó svo að ég kæmi ekki til þeirra. Matta spurði mig með hverjum ég væri og ég sagðist bara vera ein. Henni fannst þetta hálf skrítið held ég. Ég hef aldrei gert þetta áður, maður er alltaf svo sperhræddur. Ég var að gera ákveðna tilraun. Get ég farið ein í bíó? Svarið er: já! Og það er ekkert mál. Hefði reyndar mátt fara á skemmtilegri mynd, en ræman H.H er ekki sú besta sem ég hef farið á. Það var enginn söguþráður, þetta var eins og að horfa á hjartalínurit dauðs manns. Alveg flatt. Ég heiti því að fara aldrei aftur á mynd með Harrison Ford. Myndirnar hans eru ekki að mínu skapi. Josh Hartnett bjargaði því sem bjargað varð. Hann er órúlega myndarlegur og hann er með frekjuskarð. Mér finnst það flott. En það finnst kannski ekki öllum. Ég man þegar ég var í ML þá vorum við nokkur, ég, Guðrún, Eyjó, Matta, Héðinn og 2-3 í viðbót, inni í herbergi hjá Eyjó að skoða einhver blöð. Allt í einu skellihló Héðinn og segir: ,,hahaha, fyrirsæta með frekjuskarð". Við horfðum öll hvert á annað og sögðum í kór: ,,og hvað er athugavert við það. það kom í ljós að við vorum flest öll með frekjuskarð, nema Héðinn! Smá útúrdúr:) já, myndin var sem sagt ekkert til að hrópa húrra fyrir. Það löbbuðu fimm manns út af myndinni og strákurinn fyrir framan mig svaf allan seinni hálfleikinn. Þegar myndinni var lokið keyrði ég niður i bæ og ætlaði að hitta Möttu og Co á Kofanum. Mamma og pabbi hringdu þá og voru reiðubúin að fara heim. Voru búin að dansa nóg. Pabbi kvartaði yfir loftræstingunni á Nasa en mamma yfir því hve hljómsveitin spilaði lítið. Þau skemmtu sér þó samt mjög vel. Héldu skemmtilegan fyrirlestur fyrir mig um Hljóma og hvernig þeir hefðu misst ,,touchið" eftir að hann Engilbert Jensen var rekinn úr hljómsveitinni. Settu Hljómadiskinn í geislaspilarann í bílnum og leyfðu mér að heyra öll bestu lögin þeirra... og hann Engilbert söng mörg af þeim. Skemmtilegt allt saman.
Laugardagurinn
Vaknaði um hádegi og settist við saumavélina. Uppgötvaði að ég ætti ekkert til að vera í og því varð að redda. Átti flott sléttflauelsefni sem gegndi hlutverki yfirbreiðslu sófans míns í Nes Town.Ég sneið eitt stykki pils úr hluta af efninu og saumaði. Var ekki nema einn og hálfan tíma að öllu saman, að sníða og sauma. Horfði meira að segja á Man Utd bursta Bolton á meðan ég var að títa pilsið upp. Ég kláraði svo að gera viðurkenningarnar en ég veitti Bakkusarverðlaunin í annað sinn Var næstum búin að flæma fjölskyldUna út úr húsi því að ég var að gera skjölin ,,gömul" með því að brenna kantana. Hræðileg lykt af þessu öllu saman. Lagði svo af stað í bæinn og var komin þangað um 20 leytið. Hitti Skerjóliðið á Sólvallagötunni. Þar veitti ég Bakkusarverðlaunin og úrslitin urðu þessi:
Signý= Húsfreyja og 22 drottning ársins
Valdi = Hnjaskmaður ársins
Sigfús = Flugmaður ársins
Bragi = Uppi ársins
Ágústa = R&B kona ársins
Arna = Flakkari ársins
Steini = Bókarotta ársins
Gísli = Málfræðimaður ársins
Helgi = Kafbátamaður ársins
Linda = Mamma ársins
Ingimundur = Spariskór og útskriftarpési ársins
Maríanna = Pæja og Ísfirðingur ársins
Magga = Florence Nightingale ársins
Lalli = Svalarokkari ársins
Tóti = Efasemdamaður ársins
Þráinn = ,,Ég týni alltaf öllu á djamminu" maður ársins
Fríða = Pönkari ársins
Soffía = Íþróttaálfur ársins
Sædís = út - Valdi ársins
Una = Skutla ársins
Eftir verðlaunaafhendingUna fórum við niður í bæ að berja Quarashi augum. Löbbuðum svo um bæinn og nutum menningarinnar og góða veðursins. Hitti Guðrúnu sem ég kynntist þegar ég var að kenna í Neskaupstað. Merkilegt að hitta hana innan um 100.000 manns. Hún tekur við bekknum mínum og það var sérlega gaman að hitta hana á hafnarbakkanum. Þegar flugeldasýningin var búin fórum við á einhvern nýjan bar sem heitir Centrum. Vorum. Við Signý, Mundi og Vignir fórum í tequila keppni sem þótti gáfuleg hugmynd þá en veit ekki með seinna. Skemmti mér samt vel. Ingimundur var helvíti hress að öllu þessu loknu. Alla vega hressari en fólk er almennt. Gaman að því. Við Signý stormuðum svo til Héðins og Þóris, fyrrverandi sambýlismanns míns. Þar voru Matta og Ásdís, Dóra, Hlédís og Davíð og svo hommarnir þrír: Héðinn, Gulli og Þórir. Gulli er helvíti hress. Hlédís er orkumesti karakter sem ég þekkti en Gulli toppaði það. Hann sveiflaði henni út um allt í svaka dans sveiflu og meira að segja hún varð að biðja um miskunn. Röltum okkur svo niður á Ölstofu þar sem við hittum Hannes. Restin af kvöldinu fórr í dans og rölt. Fór heim um 5, sæl og þreytt eftir frábært kvöld.
Sunnudagurinn
Við Signý fórum á Guðhús Grillmundar þegar við vöknuðum. Þar hittum við Tóta og Jonna og Óla afmælisbarn með fjölskyldunni. Ágústa og Soffía slógust svo í hópinn með okkur. Þær fengu sér að borða á Viktor Þannig að við settumst úti með þeim þar. Fínt veður. En það er einn galli á gjöf Njarðar Þegar það er svona gott veður úti og það er geitungarnir. Þeir létu okkur ekki í friði. Skratthea, Ãsdís og Þórir komu svo til okkar og Þórir dansaði býflugnadansinn. Kannski ekki dans, meira svona hopp til að losna frá flugunum. Röltum okkur svo niður á Austurvöll þar sem við lágum í góða veðrinu. Góðar stundir