Eirðarlaus
Var eitthvað eirðarlaus í gær og því ákváðum við
Sveinsdóttir að skellta okkur í kvikmyndhús borgarinnar. Sáum ræmUna
Lost in Translation. Mér finnst stundum gaman að þýða titla þeirrar myndar, sem ég er að fara að sjá, yfir á íslensku og spyrja um miða á þá mynd. Finnst það ákveðinn húmor. Í gær klikkaði ég á þessu en áttaði mig þegar ég var búin að biðja um miðann. Brá þá á það ráð að spyrja afgreiðslustúlkUna hvort að einhver hefði spurt hana um miða á
glatað í þýðingunni. (Verð að viðurkenna að ég var ekki alveg viss hvernig ég ætti að þýða þetta, þannig að ég var svolítið glötuð í þýðingunni). Afgreiðslustelpan horfði á mig stórum augum og sagði ,,ha, nei það held ég ekki". Spurði hana þá hvort ég mætti taka aftur það sem ég sagði og bað um einn miða á ,,glatað í þýðingunni". Henni fannst þetta fyndið og lét mig fá miðann. Myndin var snilldin ein. Kaldhæðinn húmor og góður leikur. Það sem mér fannst fyndnast var að sjá Japana syngja
God save the Queen með
Sex Pistols í karókí. Óborganlegt. Ekkert meira um það að segja. Nema bara það að tónlistin var líka góð. Lokalagið er með
Jesus and Mary Chain,
Just like Honey. Helv...gott lag. Góðar stundir