Það örlar á því
að það er mikið að gera á stóru heimili. Tja, kannski ekki svo stóru. Er að fara yfir um á vinnu og á eftir að kaupa allar jólagjafirnar + skrifa jólakort. Er þó búin með nokkur. Dominos auglýsingin er ekki til að bæta það. Minnir mig á allt það sem ég á eftir að gera. Þetta reddast allt og það þýðir ekkert að stressa sig á þessu. Tek mér tíma í að hitta vini og kunningja. Annars færi ég yfir um. Er farin að sjá Kanaríferðina þann 5. janúar í hyllingum.
Hitti Ástrík á fimmtudagskvöldið á Galileo, í tilefni af því að Tjörvi og Anna eru í stoppi á Ísalandinu mikla. Búa í DK. Vorum um 20 sem sátum og snæddum. Gaman að því og flottur staður.
Föstudagskvöldinu eyddi ég í afslöppun. Fékk mér malt og appelsín og skrifaði nokkur jólakort á meðan Sveinsdóttir sambýlingur
bakaði. Fann þá fyrir smá jólatilfinningu. Er maður farinn að eldast þegar maður er skriðinn upp í rúm um miðnætti á föstudagskvöldi? Nei, varla. Bara merki um þreytu.
Fór í rækina um leið og ég opnaði augun á laugardagsmorgninum. Svo strunsaði ég í VinnUna. Kom heim um 18:00 og rölti Laugaveginn með Sveinsdóttur. Settumst inn á Vegamót og ég fékk mér hvítvínsglas og snarl. 2 meðlimir Jagúar sátu á neðri hæðinni og spiluðu. Frábært. Þetta var ekkert smá notalegt. Maður er hættur að voga sér í verslunarmiðstöðvar. Það eru allir svo stressaðir og það er ekkert tillit tekið til annarra vegfarenda. Er ekki hrifin af slíku. Laugavegsröltið var akkurat það sem ég þurfti. Eyddi smá pening í mig. Sem er vel. Var boðin í stelpnapartý til Heiðu, frænku Signýjar, en það var í Grafarvogi. Nennti ekki að fara alla leið þangað. Signý var líka að vinna til 22:00 þannig að það tók því ekki að storma út í sveit. Klara, samkennari Sveinsdóttur í MH, opnaði sína íbúð og
Bragi kom með okkur þangað. Sátum og kjöftuðum. Splendid alveg. Bragi var með nýju myndavélina og fannst ekki leiðinlegt að taka myndir. Þessi myndaárátta fór þó illa með hann því honum var vísað út af Ölstofunni fyrir að taka myndir. Var búin að segja honum að svo myndi fara, en Bragi Rebel varð að athuga hvort að svo mundi fara. Svo fór. Skemmtilegt kvöld. Hitti fullt af skemmtilegu fólki. Suma var ég þó ekki alveg að skilja. Legg ekki meira á þig.
Sunnudagurinn fór í vinnu og skreppitúr í Citýið. Alltaf gott að koma í foreldrahús. Síðasta vígið er fallið. Hr. Einar og frú Ásdís, foreldrar mínir, eru komin með internetið. Pabbi var í smá uppskurði og verður frá vinnu fram yfir jól. Hann er eirðarlaus og ekki vanur því að hafa allan þennan frítíma. Hann fékk sér því netið. Ég kynnti hann fyrir hr. Kapli í tölvunni. Þeir felldu hugi saman og faðir sat límdur yfir þessu undri fram eftir degi. Lifið heil.