Góðan daginnÉg virðist bara hafa fyrir því að blogga á tyllidögum. Skrítið. Afmælisdagurinn var svona líka splendid. Fékk kökur únd alles í vinnunni. Gaman að því. Ég hélt svo í afmælisveislu hjá Þórhöllu, kærustu Ármanns, eftir vinnu. Hef aldrei áður farið í afmælisveislu hjá öðrum á afmælisdeginum mínum:)
Hélt svo upp á mitt afmæli á laugardaginn. Laugardagurinn var svolítið þétt skipaður. Dreif mig fyrst í spinning, fór og verslaði allt fyrir veislUna, lagaði til og lagaði svo sjálfa mig til. Því næst var haldið í útskriftarveislu hjá Þránni, en hann var að útskrifast með mastersgráðu í verkfræði. Gúffaði í mig kökum þar og svo lá leið mín í Baðhúsið því við vorum búnar að panta pottinn í tilefni dagsins. Mmmm, það er svoooo þægilegt að liggja þar með rauðvín og spjalla. Hildur, húsmóðirin mikla, kom meira að segja með heimagert konfekt. Þetta á maður að gera oftar! Partýið heppnaðist mjög vel og samkvæmisleikir voru að sjálfsögðu brúkaðir. Er ekki þekkt fyrir annað. Fékk góðar gjafir: Hitchhikers guide to the galaxy bókina, body lotin, augnskugga, Helenu Rubenstein handaáburð, nokkra kossa, sokkabuxur, hvítvín o.s.frv. Heiðruðum bæinn svo með nærveru okkar.
Sunnudagurinn fór í afslappelsi. Var svo pollróleg að ég lét plata mig í sund. Sund! Góðar stundir