SumarfríEr búin að vera í sumarfríi frá verslunarmannahelgi. Ljúft. Var í Citýinu fram á þriðjudag í góðu yfirlæti foreldra. Á laugardaginn var Reunion og það tókst bara nokkuð vel. Fleiri hefðu mátt mæta en þeir sem mættu skemmtu sér stórvel! Við byrjuðum kl. 14:00 eða þar um bil, í Skrúðgarðinum. Fórum fyrst í brennó og mitt lið vann. Að sjálfsögðu. Þar næst var farið í ratleik um Citýið. Hann tókst vel. Dansatriðið verður lengi í minnum haft. Það var tekið upp og sýnt síðar um kvöldið. Maggi Sæla sló í gegn með afbrigði af svanavatninu & Billy Elliott. Við borðuðum svo uppi í Kiwanishúsi og vorum með smá leiki. Svo var haldið á ball. Skemmtilegt. Getið séð nokkrar myndir
hér. Þess ber að geta að þær voru teknar áður en drykkjuleikirnir héldu innreið sína.
Við vorum með plaggöt á veggjunum í Kiwanis, úr gömlum skólablöðum, sem Sandra föndraði. Þar var eitt ljóð eftir Lilju Dröfn vinkonu, sem var í skólablaðinu árið 1992 þegar við vorum 14 ára, og það hljóðar svo:
En hve gaman væri að prófa að vera Una, hugsa eins og hún,hlægja eins og húnsegja eitthvað fyndið og heimskulegt eins og húnað vísu væri þá alveg eins gottað vera Óli.Þetta fannst mér fyndið.
Núna er ég bara í afslöppun og í því að njóta lífsins. Nóg framundan. Á föstudaginn verður stelpuhittingur hjá okkur sem vorum að vinna í félagsmiðstöðvageiranum í Grafarvogi, Gufunesbæ, 2000-2001. Ef ég þekki Elínu rétt þá heimtar hún að hallærisdansar verði í hávegum hafðir. Á laugardaginn er svo brúðkaup hjá Gísla og Sonju. Verðum að leggja snemma af stað því brúðkaupið er að Laugabökkum. Búin að panta gistingu, brúðkaupsgjöfin og skemmtiatriði er í höfn. Jytte bra.
Farin að njóta lífsins. Góðar stundir.