.Ég er ekki alveg að standa mig í bloggheimi. Margt kemur til, mikið er að gera og skrifleti blandast inn í. Margt hefur á daga mína drifið í janúar. Þetta er helst:- varð föðursystir
- fór til Kanaríeyja í viku. Var á flottu hóteli í góðum félagsskap
- fór í sumarbústaðarferð með Hr. R
- fór á árshátíð meistaranema viðskiptafræðideildar HÍ
- fór á ML reunion
- var beðin um að vera veislustjóri í brúðkaupi vinkonu minnar með Skrattheu Skorrdal
- unnið
- fór í afmæliskaffi til frú Ásdísar
- einnig farið í afmæliskaffi til Lalla
- sótt tíma
- fór út að borða á Argentínu
- fór í splitt og fékk harðsperrur í hægri rasskinnina
- keypt skó
- fór í stelpnahitting á Vegamót
- verið lukkuleg
- reynt að leggja vísakortinu
- var næstum búin að kaupa mér ferð til Kaupmannahafnar, en komist að því að ég get ekki gert allt í einu (eða svo er mér sagt)
- boðið í óvissuferð í byrjun mars, út fyrir landsteinana.
Hvað skyldi febrúar bjóða upp á?
Lifið heil