Núer annasamri viku að ljúka, hef lítið verið heimavið sökum anna:mánudagur: afmæli
þriðjudagur: saumaklúbbur
miðvikudagur: æfing á atriði fyrir brúðkaupa Lalla
fimmtudagur: hittingur hjá Hildi vegna brúðkaups hennar og Gumma (við Skratthea Skorrdal erum veislustjórar...)
Ætlaði að hitta mannauðsstjórnunarnemana eftir vinnu í dag á Thorvaldsen en ég ákvað að vera bara heima og slappa af. Þarf helst að rumpa af verkefnavinnu í stefnumiðaðri stjórnun. Sjáum til hvað ég nenni.
Á morgun er svo brúðkaup Lalla og Hafdísar og auðvitað verður Skerjóhópurinn með magnað atriði. Engin spurning. Ekki fæst hins vegar uppgefið hvað um er að ræða.
Sunnudagurinn fer svo í verkefnavinnu með hópnum mínum í stefnumiðaðri stjórnun. Nóg að gera. Lifi byltingin.
Lifið heil.