Senn koma jólTíminn er svo ótrúlega fljótur að líða, maður verður orðinn 25 ára áður en maður veit af... Ég er búin að bralla ýmislegt síðan ég bloggaði síðast. T.d.
- skorið út laufabrauð hjá Frú Guðmundu
- verslað allar jólagjafir (líka þína Sveinsdóttir)
- Ármann, þín gjöf byrjar á eff...
- skrifað (í fyrirtíðaspennukasti) jólakortin, örugglega mjög vel skrifuð
- keypt jólatré og skreytt
- rifið eitt stykki pils á bílhurð
- sent jólakortin
- keypt bókahillu
- haft 2 púka, 3ja og 4ra ára, í rúman sólarhring (hálfbræður Hr. R)
- vakin kl. 6 af púkunum og beðin um að setja saman Legó sem þeir fengu í skóinn
- sett saman Legó uppi í rúmi með stýrurnar í augunum á meðan jólalög voru sungin fyrir okkur
- sett saman bókahillu
- farið á kaffihús með veðurfréttakonunni og Zen
- arkað Laugaveginn í brjáluðu veðri með þeim stöllum
- verið kölluð Rauðsokka af Leon samstarfsmanni mínum í 1.000 skipti. Mér finnst Rauðsokka gott orð
- sett Gsm síma Hr. R í þvottavélina
- hitt Ásdísi mína, sem er nýkomin frá UK og Helgu mína
- farið út að borða á Café Operu og fengið þar góðan mat (mæli með humarsúpunni)
- farið á James Bond og þótti hún alveg ágæt bara (skárri en flestar sem ég hef séð)
- gerst heimsforeldri
- fengið kampavínsflösku að gjöf frá Bankanum
- fengið osta og rauðvín að gjöf frá KB Ráðgjöf
- blótað því að vera að grennast því þá passa fötin manns ekki lengur (aldrei hægt að gera manni til hæfis.../kaldhæðnislegt)
- verið boðin á tónleika með Baggalúti á messu þá er kennd er við Þorlákshöfn, af sambýlismanninum.
Góðar stundir.