Helginvar hin bezta. Þegar ég kom heim úr vinnu á föstudaginn beið sambýlismaðurinn eftir mér og sagði mér að fara inn í stofu og loka augunum, sem ég og gerði. Eftir dulitla stund kemur hann inn í stofu og biður mig um að rétta út hendurnar, sem ég og gerði. Hann réttir mér þá kassa og segir að ég megi opna augun. Nú, ég opna kassann og í þeim liggja stígvélin sem ég var að dást að um daginn. Mátaði þau nefnilega, en ákvað að kaupa ekki. Hr. R hefur tekið eftir skónúmerinu og farið og keypt stígvélin þessi elska. Sagðist hafa keypt þau fyrir löngu síðan en gæti ekki beðið lengur. Er fyrirfram afmælisgjöf (senn líður að 3ognúll afmælinu) þar sem hann ætlar að bjóða mér til London afmælishelgina mína. Ég er lukkuleg dama.
Við brunuðum í Citýið á föstudagskvöldið að samfagna Guðlaugu og Settu með 80 ára afmælið (Guðlaug 30. og Setta 50.) Kvöldið var hið bezta, fullt af fólki og heilt djassband í stofunni. Hr. R var sem sagt frumsýndur í Citýinu og held að hann hafi sloppið heill frá því ;) Gistum svo hjá foreldrum.
Laugardagurinn fór í tiltekt og tilraun til lærdóms og sunnudagurinn fór í lunch á Vegamót og Kolaportsrúnt. Eitthvað var rembst við lærdóm líka.
Allt í allt fyrirtakshelgi.
Góðar stundir.