ÚtskriftLoksins rann upp dagurinn, útskriftardagurinn. Byrjaði daginn á því að þjóta í ræktina, eða sannleikurinn er kannski sá að Sigurrós og Skarpi drógu mig í ræktina. Hef ekki verið dugleg við fara upp á síðkastið, ótrúlega gott að byrja daginn á því að sprikla örlítið. Smellti mér svo í dusch bad, setti upp andlitið og klæddi mig í kjól og hvítt. Þurfi að vera mætt upp í Hásólabíó kl. 12 og mætti því korter yfir... Athöfnin byrjaði um eitt leytið og þessu var rumpað af á einum og hálfum tíma, mjög góður millitími. Sveinsdóttir útskrifaðist einnig og sátum við hlið við við hlið, svo samrýndar stöllurnar sjáið þið til.
Ég hélt smá veislu heima fyrir fjölskyldur okkar Hr. R, sem heppnaðist svona líka ljómandi vel. Alltaf gott að hafa fólkið sitt hjá sér. Pantaði Tapas- og brauðveislu frá Veislunni, get alveg mælt með því. Góður matur og ótrúlega vel útilátið. Veislan stóð fram yfir Evrósjón og svo var haldið í teiti til Soffíu. Góður dagur.
Konudagurinn er í dag. Hr. R var að spá í að gefa mér blóm en það eru öngvir lausir vasar til á heimilinu. Íbúðin er eins og blómaverslun í augnablikinu í tilefni útskriftarinnar. Í staðinn ætlaði þessi elska að elda eitthvað gott handa mér. Ég bað um Kentucky (KFC)...
Góðar stundir.